Esta é a versão antiga da Dying Days. A nova versão está em http://dyingdays.net. Estamos gradualmente migrando o conteúdo deste site antigo para o novo. Até o término desse trabalho, a versão antiga da Dying Days continuará disponível aqui em http://v1.dyingdays.net.


discografia,
letras e reviews:

* principal
* complementar

arquivo
letras traduzidas
Home | Bandas | Letras | Reviews | MP3 | Fale Conosco

Letras: Agaetis Byrjun



intro

[instrumental]


svefn-g-englar

ég er kominn aftur
inn í þig
það er svo gott að vera hér
en stoppa stutt við
ég flýt um í neðarsjávar hýði
á hóteli
beintengdur við rafmagnstöfluna
og nærist
tjú tjú
en biðin gerir mig leiðan
brot hættan sparka frá mér
og kall á - verð að fara - hjálp
ég spring út og friðurinn í loft upp
baðaður nýju ljósi
ég græt og ég græt - aftengdur
ónýttur heili settur á brjóst
og mataður af svefn-g-englum


starálfur

blá nótt yfir himininn
blá nótt yfir mér
horf-inn út um gluggann
minn með hendur
faldar undir kinn
hugsum daginn minn
í dag og í gær
blá náttfötin klæða mig í
beint upp í rúm
breiði mjúku sængina
loka augunum
ég fel hausinn minn undir sæng
starir á mig lítill álfur
hleypur að mér en hreyfist ekki
úr stað – sjálfur
starálfur
opna augun
stírurnar úr
teygi mig og tel (hvort ég sé ekki)
kominn aftur og alltalltílæ
samt vantar eitthvað
eins og alla vegginna


flugufrelsarinn

hamagangur, ég þusti niður að læknum, bjargvættur.
ég gerði skip tilbúið og fór með litla bæn því ég var hræddur.
sólin skein og lækurinn seytlaði.
sóley - sóley flugurnar drepast.
en í dag á ég að bjarga sem flestum flugum.
með spotta í skip ég er með í hvorri hendi - ákveðinn.
ég kasta þeim út í hylinn og reyni að hala flugurnar inn áður en seiðin ná til þar sem þær berjast við strauminn og vatnið.
þannig líður dagurinn.
sjálfur kominn um borð, var farinn að berjast við bæjarlækinn sem hafði þegar deytt svo margar.
ég næ ekki andanum og þyngist við hverja öldu.
mér vantar kraftaverk því ég er að drukkna syndir.
ég reyni að komast um borð.
ég dreg í land og bjarga því sjálfum mér aftur á bakkann.
á heitan stein ég legg mig og læt mig þorna aftur.
ég kasta mér út í hylinn og reyni að hala flugurnar inn áður en seiðin ná til þeirra þar sem þær berjast við strauminn og vatnið.
gustur, allur rennblautur.
frakkur finnur hvernig báturinn er kominn og mesta straumnum og landið smám saman nálgaðist.
hann er bæði um borð í sjó og landi bjargandi flugunum sem farast hér.
þó sér í lagi sjálfum sér.
eilíft stríð og hvergi friður.
en það verður einhver að fórna sér.
dagarnir eru langir.


ný batterí

heftur með gaddavír í kjaftinum sem blæðir mig
læstur er lokaður inn í búri
dýr nakinn ber á mig
og bankar upp á frelsari
ótaminn setur í ný batterí
og hleður á ný
og hleður á ný
og hleður á ný
og hleður á ný
við tætum tryllt af stað
út í óvissuna þar
til að við rústum öllu og reisum aftur
aftur á ný
aftur á ný
aftur á ný
aftur á bak þar sem við ríðum
aftur með gaddavír
sem rífur upp gamalt gróið sár
er orðinn ryðguð sál
rafmagnið búið
mig langar að skera
og rista sjálfan mig á hol
en þori það ekki
frekar slekk ég á mér
aleinn á ný


hjartað hamast {bamm bamm bamm}

hjartað hamast
eins og alltaf
en nú úr takt við tímann
týndur og gleymdur heima hjá mér
alveg að springa í gegnum nefið
sný upp á sveitta sængina
stari á ryðið sem vex á mér
étur sig inní skelina
ég stend upp mig svimar
það molnar af mér
ég fer um á fótum
geng fram hjá mér
klæði mig nakinn
og fer svo úr
vakinn en sofinn
sef ekki dúr
hjartað stoppar
hreyfist ekki
kem gangráð fyrir
(sem ég kingi og fel)
finn startkapal
(og kveiki í mér)
sé allt tvöfallt
(tvöfallt svart)
kerfisbilun
(heilinn neitar)
held áfram að leita
óstjórnandi
(upplýsingar)
þarf aftur að mata
(mata mig)
tala upphátt og ferðast inni í mér leita
ég leita af lífi um stund
ég stóð í stað
með von að vin ég vinn upp smá tíma
leita að ágætis byrjun
en verð að vonbrigðum


viðrar vel til loftárása

ég læt mig líða áfram
í gegnum hausinn
hugsa hálfa leið
afturábak
sé sjálfan mig syngja fagnaðarerindið
sem við sömdum saman
við áttum okkur draum
áttum allt
við riðum heimsendi
við riðum leitandi
klifruðum skýjakljúfa
sem síðar sprungu upp
friðurinn úti
ég lek jafnvægi
dett niður
alger þögn
ekkert svar
en það besta sem guð hefur skapað
er nýr dagur


olsen olsen

[instrumental]


ágætis byrjun

bjartar vonir rætast
er við göngum bæinn
brosum og hlæjum glaðir
vinátta og þreyta mætast
höldum upp á daginn
og fögnum tveggja ára bið
fjarlægur draumur fæðist
borðum og drekkum saddir
og borgum fyrir okkur
með því sem við eigum í dag
setjumst niður spenntir
hlustum á sjálfa okkur slá
í takt við tónlistina
það virðist enginn hlusta
þetta er allt öðruvísi
við lifðum í öðrum heimi
þar sem vorum aldrei ósýnileg
nokkrum dögum síðar
við tölum saman á ný
en hljóðið var ekki gott
við vorum sammála um það
sammála um flesta hluti
við munum gera betur næst
þetta er ágætis byrjun


avalon

[instrumental]